Áratuga reynsla úr lögfræði og viðskiptalífi

H5B er sjálfstæð ráðgjafarstofa í eigu Arnar Gunnarssonar með áherslu á lögfræði, fyrirtækjaviðskipti og stefnumótandi ráðgjöf.

Örn Gunnarsson, eigandi H5B, hefur áratuga reynsla úr íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi. Örn starfaði í um 10 ára skeið sem stjórnandi fyrirtækjaráðgjafar bæði hjá Íslandsbanka og Saga Capital, um tveggja ára skeið hjá íslensku upplýsingatæknifyrirtæki en síðastu 15 árin hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri lögmannstofunnar LEX.

Í störfum sínum hefur Örn bæði sem lögmaður og fjármálaráðgjafi, komið að mörgum af stærstu fyrirtækjaviðskiptum á Íslandi auk þess sem að hann hefur veitt ráðgjöf til fjölmargra íslenskra aðila í viðskiptum þeirra við kaup eða sölu fyrirtækja á erlendri grund. Þá hefur Örn umfangsmikla reynslu af lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki, lítil og stór, á flestum þeim sviðum lögfræðinnar sem íslensk fyrirtæki glíma við í þeirra daglegu störfum.

Menntun og réttindi

  • MBA frá Rotterdam School of Management, Erasmus Graduate School of Business, 2000

  • Lögfræðingur frá Háskóla Íslands, 1994

  • Próf í verðbréfamiðlun, 2001

  • Lögmannsréttindi, 1995

  • Löggiltur fasteigna og skipasali, 1995