Skilvirk lögfræði og fjármálaráðgjöf
byggð á áratuga reynslu
Yfir 30 ára reynsla sem lögmaður, fjármálaráðgjafi og stjórnandi.
Gefur viðskiptavinum einstaka þjónustu þar sem sameinuð er reynsla af fyrirtækjaviðskiptum, lögfræðiráðgjöf, fjárfestingum og stefnumarkandi ákvörðunartöku.
Örn Gunnarsson, eigandi H5B, hefur áratuga reynsla úr íslensku og alþjóðlegu viðskiptalífi. Örn starfaði í um 10 ára skeið sem stjórnandi fyrirtækjaráðgjafar bæði hjá Íslandsbanka og Saga Capital, um tveggja ára skeið hjá íslensku upplýsingatæknifyrirtæki en síðastu 15 árin hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri lögmannstofunnar LEX.
Í störfum sínum hefur Örn bæði sem lögmaður og fjármálaráðgjafi, komið að mörgum af stærstu fyrirtækjaviðskiptum á Íslandi auk þess sem að hann hefur veitt ráðgjöf til fjölmargra íslenskra aðila í viðskiptum þeirra við kaup eða sölu fyrirtækja á erlendri grund. Þá hefur Örn umfangsmikla reynslu af lögfræðiráðgjöf við fyrirtæki, lítil og stór, á flestum þeim sviðum lögfræðinnar sem íslensk fyrirtæki glíma við í þeirra daglegu störfum.
Menntun og réttindi:
MBA frá Rotterdam School of Management, Erasmus Graduate School of Business, 2000
Lögfræðingur frá Háskóla Íslands, 1994
Próf í verðbréfamiðlun, 2001
Lögmannsréttindi, 1995
Löggiltur fasteigna og skipasali, 1995